Forsetahjónin heimsækja Bláskógabyggð

Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid.
Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid. Ljósmynd/Kongehuset.no

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og frú Eliza Reed halda í opinbera heimsókn til Bláskógabyggðar á morgun og stendur heimsóknin í einn dag.

Þennan dag á sveitarfélagið 15 ára afmæli en það varð til við samruna þriggja sveitarfélaga á Suðurlandi. Öllum íbúum Bláskógabyggðar og fleiri gestum er boðið til móttöku í Aratungu í Reykholti síðdegis klukkan 16, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Dagskrá heimsóknarinnar hefst við Heiðarbæ í Þingvallasveit að morgni dags en svo verður haldið í þjóðgarðinn á Þingvöllum þar sem Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður og Vilhjálmur Árnason, formaður Þingvallanefndar, taka á móti gestum.

Þá liggur leiðin að Laugarvatnshellum þar sem forseti skoðar aðstöðu sem þar er búið að koma upp. Næst er haldið í Héraðsskólann á Laugarvatni þar sem gestir njóta leiðsagnar Halldórs Páls Halldórssonar skólameistara og því næst er komið við í Fontana lauginni.

Eftir hádegi heimsækja forsetahjónin bændur á Hjálmsstöðum, þau Ragnhildi Sævarsdóttur og Daníel Pálsson, og kynna sér kúabúskapinn þar.

Í Heilsugæslunni í Laugarási taka forsetahjón þátt í dagskrá um heilbrigðismál og samfélag. Þar verður jafnframt staðfestur samningur Bláskógabyggðar og embættis landlæknis um Heilsueflandi samfélag.

Að þessu loknu halda gestirnir í Friðheima sem þekktir eru fyrir tómatarækt og veitingasölu en þar geta ferðamenn einnig séð hestasýningar. Því næst sækja forsetahjónin hátíðarsamkomu í Aratungu í boði Bláskógabyggðar þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá, forseti flytur hátíðarávarp og færir sveitarfélaginu gjöf.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert