Dekkið losnaði og skall á bíl

Enginn sjúklingur var í sjúkrabílnum.
Enginn sjúklingur var í sjúkrabílnum. mbl.is/Hjörtur

Sjúkrabíll sem var á leið frá Hvolsvelli á Selfoss klukkan 7 í morgun missti afturdekkið á ferð og skall það framan á sendiferðabíl sem kom úr gagnstæðri átt. Enginn slasaðist við óhappið þar sem bílstjóri sjúkrabílsins náði að halda stjórn á bílnum og dekkið skoppaði af stuðara hins. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var sjúkrabíllinn ekki í sjúkraflutningum heldur var hann að fara milli stöðva. Tjónið var minni háttar en meira sá á hinum bílnum. Sjúkrabíllinn var fluttur á Selfoss til viðgerðar. Vísir greindi fyrst frá málinu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert