Sólheimajökull bráðnar hratt

„Ef þetta heldur svona áfram þá mun hann auðvitað bara smátt og smátt hverfa,“ segir Tómas Birgir Magnússon leiðsögumaður um breytingar á Sólheimajökli.

Þróun Sólheimajökuls, hop hans og bráðnun jökulhellunnar hefur verið samkvæmt hitastigi og loftslagsbreytingum á undanförnum árum. Jökullinn styttist um 973 metra frá árinu 2000-2015að því er segir í Morgunblaðinu í dag.

„Jökullinn er svo sem í ágætu standi nema hann er bara að minnka hratt. Það koma tímabil þar sem er mjög erfitt að fara á hann og svo koma önnur þar sem það er mjög auðvelt,“ segir Tómas en að meðaltali hopar hann um 65 metra á ári.

Sólheimajökull er skriðjökull sem gengur suður úr Mýrdalsjökli og frá honum fellur Jökulsá á Sólheimasandi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert