Hafrannsóknastofnun leggur til að aflamark þorsks fyrir fiskveiðiárið 2017/2018 verði 257.572 tonn, en það er aukning um 6% frá ráðgefnu aflamarki fiskveiðiársins 2016/2017, en það er 244.000 tonn. Þetta kom fram á fundi stofnunarinnar um ástand nytjastofna sjávar og ráðgjöf fyrir árið 2017.
Er nýliðun í stofninum sögð hafa verið stöðug frá árinu 1988 og stækkun stofnsins talin afleiðing minnkandi sóknar. Árgangur ársins 2013 hafi verið slakur en árgangar 2014 og 2015 nálægt langtímameðaltali.
2016-árgangurinn virðist þó vera slakur við fyrstu mælingar en sá árgangur kemur ekki inn í viðmiðunarstofninn fyrr en árið 2020.