Fatímusjóður gefur tæpar níu milljónir

Fulltrúar Fatimusjóðsins afhentu UNICEF á Íslandi styrkinn.
Fulltrúar Fatimusjóðsins afhentu UNICEF á Íslandi styrkinn. Ljósmynd/Laufey Elíasdóttir

Fulltrúar Fatimusjóðsins afhentu UNICEF á Íslandi 8,6 milljóna króna framlag sem rennur til stríðshrjáðra barna í Jemen. Hluti upphæðarinnar er afrakstur skákmaraþons Hrafns Jökulssonar og Hróksins. Jóhanna Kristjónsdóttir, stofnandi Fatímu-sjóðsins, safnaði framlögum fyrir börn í neyð allt þar til yfir lauk en hún lést í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Síðastliðin tvö ár hefur borgarstyrjöld geisað í landinu og er hungursneyð nú yfirvofandi. Talið er að um 80% barna í Jemen þurfi á hjálp að halda. Starfsmenn UNICEF á svæðinu vinna dag og nótt við að veita börnum neyðaraðstoð, segir í tilkynningu. 

„Fatimusjóðurinn var stofnaður árið 2005 af baráttukonunni Jóhönnu Kristjónsdóttur. Upphaflega var sjóðnum ætlað að styðja við menntun barna í Jemen en síðustu árin hefur hann beitt sér fyrir margvíslegri uppbyggingu og neyðaraðstoð í Mið-Austurlöndum. Sjóðurinn hefur verið í samstarfi við UNICEF undanfarin ár og safnað tugmilljónum króna fyrir börn í neyð,“ segir jafnframt í tilkynningu. 

„Framlag Fatimusjóðsins er ómetanlegt og við hjá UNICEF á Íslandi erum innilega þakklát fyrir stuðninginn. Við minnumst Jóhönnu af miklum hlýhug og erum þakklát fyrir allt hið góða sem hún kom til leiða fyrir konur og börn í Jemen, Sýrlandi og víðar. Ótal börn sem aldrei hittu hana eiga henni svo margt að þakka,“ er haft eftir Bergsteini Jónssyni, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. 

Ljósmynd/Laufey Elíasdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert