Lítil herbergi leigð á hundruð þúsunda

mbl.is/Sigurður Bogi

Í stórum húsum í úthverfum borgarinnar, sem leigð eru mörgum einstaklingum, er leiguverð fyrir tveggja manna herbergi á annað hundrað þúsund á mánuði og fyrir 10 fermetra einstaklingsherbergi getur þurft að greiða allt að 90 þúsund krónur.

Ingimundur Þór Þorsteinsson rekur leiguvef þar sem 16 herbergi eru auglýst í tveimur húsum, öðru í Kópavogi og hinu í Seljahverfi. Fermetraverðið nemur hátt í 5 þúsund krónum á mánuði eða tæplega tvöföldu verði á við íbúðir í sama póstnúmeri.

Nánar er fjallað um málið í Sunnudagsmogganum sem fylgir blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert