Mikill reykur og tveir hundar í húsinu

mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Slökkvilið og lögregla á Akureyri voru kölluð út að einbýlishúsi við Þingvallastræti á Akureyri um klukkan sex í kvöld. Fat hafði gleymst á heitri eldavél og upp kom mikill reykur sem lagði um húsið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri tók skamman tíma að reykræsta húsið og er lítið sem ekkert um skemmdir í húsinu að frátalinni nokkurri reykjalykt.

Vegfarandi sem búsettur er í nágrenninu varð reyksins var og tilkynnti til slökkviliðs en enginn var heima nema tveir hundar. Annar hundanna kom sér út af sjálfsdáðum en hinn sat um kyrrt og var bjargað úr húsinu. Báðir eru þeir heilir á húfi og komnir í umsjá ættingja að sögn lögreglu.

mbl.is/Skapti Hallgrímsson
mbl.is/Þorgeir Baldursson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert