Valt þrisvar á Reykjanesbraut

Maðurinn sem olli árekstrinum á Njarðarbraut var án ökuréttinda.
Maðurinn sem olli árekstrinum á Njarðarbraut var án ökuréttinda. mbl.is/Þórður

Ökumaður ók á ljósasstaur á Reykjanesbraut, norðan við Vogaafleggjara, með þeim afleiðingum að bíllinn fór í þrjár veltur. Hann var fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. 

Þá varð harður árekstur á Njarðarbraut á laugardag þegar tveir bílar skullu saman. Ökumaðurinn sem valdur var að árekstrinum reyndist hafa verið sviptur ökuréttindum. Engin alvarleg meiðsli urðu á fólki og voru bílarnir báðir fjarlægðir með dráttarbíl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert