47% hlynnt sýnilegri vopnaðri lögreglu

Lögregla að störfum í Reykjavík á 17. júní.
Lögregla að störfum í Reykjavík á 17. júní. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ríflega 47% Íslendinga eru hlynnt því að vopnaðir lögreglumenn séu sýnilegir á fjöldasamkomu á Íslandi en rúmlega 34% eru andvíg því samkvæmt könnun Maskínu.

Spurt var „Hversu hlynnt(ur)eða andvíg(ur)ertu því að vopnaðir lögreglumenn séu sýnilegir á fjöldasamkomum á Íslandi?“ Svarendur voru 1046 en könnunin fór fram dagana 16. til 19. júní.

Íbúar Suðurlands, Reykjaness, Vesturlands og Vestfjarða eru hlynntari vopnaðri lögreglu en íbúar annars staðar á landinu. Tekjulægsti hópurinn er sömuleiðis hlynntari vopnaburði lögreglu en aðrir tekjuhópar og þeir sem hafa háskólamenntun eru mun andvígari en þeir sem hafa minni menntun, samkvæmt Maskínu.

Einnig var spurt „Hversu jákvæð(ur) eða neikvæð(ur) ertu gagnvart lögreglunni?“og „Myndir þú upplifa þig öruggari eða óöruggari ef það væri vopnuð lögregla á fjöldasamkomu á Íslandi sem þú værir staddur/stödd á?"

88% eru jákvæð gagnvart lögreglunni og stærri hluti þeirra er hlynntur vopnaburði. Næstum helmingur svarenda myndi upplifa sig öruggari ef það væri vopnuð lögregla á fjöldasamkomu á Íslandi sem þeir væru staddir á og næstum 85% þeirra er hlynntur því að hafa vopnaða lögreglumenn sýnilega á fjöldasamkomum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert