Dregur úr fjölgun ferðamanna í maí

Hressir ferðamenn láta veðrið ekki stoppa myndatökur við fallega staði …
Hressir ferðamenn láta veðrið ekki stoppa myndatökur við fallega staði borgarinnar. Þau gengu meðfram sjónum og stoppuðu hér við Sólfarið. Hanna Andresdottir

Rúmlega 146 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í maí síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 22.000 fleiri en í maí á síðasta ári. Fjölgunin nemur 17,8% milli ára. Fjölgunin í maímánuði var minni en aðra mánuði þessa árs, en hún hafði verið frá 44,4% upp í 75,3% eftir mánuðum.

Frá áramótum hafa um 752 þúsund erlendir ferðamenn farið úr landi um Keflavíkurflugvöll sem er 46,5% aukning miðað við sama tímabil árið á undan. 

Bretum fækkar milli ára

Bandaríkjamenn voru 30% eða tæpur þriðjungur ferðamanna í maí og fjölgar verulega. Bretar komu þar næstir en athygli vekur að þeim fækkar talsvert á milli ára, eða um 28%. Annars var hlutfall tólf fjölmennustu þjóðernanna af heildarfjölda í maí sem hér segir:

  • Bandaríkin 34,2%
  • Bretland 7,8%
  • Þýskaland 7,4%
  • Kanada 6,2%
  • Frakkland 5,2%
  • Svíþjóð 4,2%
  • Noregur 3,7%
  • Pólland 3,4%
  • Danmörk 3,1%
  • Holland 2,9%
  • Kína 2,6%
  • Finnland 2,1%

Hlutfallsleg samsetning ferðamanna hefur breyst nokkuð frá árinu 2013. Bandaríkjamenn voru 29,1% af heild árið 2017 sem er mun hærra hlutfall en á árunum 2013-2016. Hlutdeild Breta var í kringum 27-29% á árunum 2013-2016 en fer niður í 21,8% árið 2017. Norðurlandabúar voru 8,1% af heild árið 2017 en hlutdeild þeirra hefur lækkað jafnt og þétt síðustu ár. Hlutdeild Mið-og S-Evrópubúa hefur verið svipuð á tímabilinu 2013-2017 en hefur hækkað hjá þeim sem falla undir annað.

Um 52 þúsund Íslendingar fóru utan í maí eða 17,8% fleiri en í maí 2016. Frá áramótum hafa um 227 þúsund Íslendingar farið utan eða 22,9% fleiri en á sama tímabili árið 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert