Innbrot og ökumenn í vímu

Tilkynnt var um innbrot í kaffihús í Breiðholti á fimmta tímanum í morgun en samkvæmt lögreglu er ekki vitað á þessari stundu hvort eða hverju var stolið. Málið er í rannsókn lögreglu. 

Lögreglan stöðvaði för fjögurra ökumanna í nótt sem eru grunaðir um að hafa verið í vímu undir stýri. Þrír þeirra undir áhrifum fíkniefna en einn áfengis. Allir þeir sem voru undir áhrifum fíkniefna eru sviptir ökuréttindum vegna fyrri brota.

Þá voru eigendur eða umráðamenn 12 ökutækja sektaðir af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna stöðubrota.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert