Landssöfnun vegna hamfaranna á Grænlandi

Þorpið Nu­uga­atsiaq á Grænlandi.
Þorpið Nu­uga­atsiaq á Grænlandi. Ljósmynd/Jón Viðar Sigurðsson

Hjálparstarf kirkjunnar, í samvinnu við KALAK, Hrókinn og fleiri Grænlandsvini, hefur hrundið af stað landssöfnun undir heitinu „Vinátta í verki“ vegna náttúruhamfaranna á Grænlandi. Flóðbylgja olli gríðarlegu tjóni í þorpinu Nuugaatsiaq aðfararnótt sunnudags og er fjögurra íbúa enn saknað. Fleiri þorp á svæðinu hafa verið rýmd enda alls ekki víst að hamförunum á Vestur-Grænlandi sé lokið.

Í tilkynningu vegna söfnunarinnar kemur fram að sterk og traust vinarbönd séu milli þjóðanna og minnst á að þegar snjóflóðið mikla féll á Flateyri 1995 var efnt til landssöfnunar á Grænlandi og safnað hárri upphæð. 

Margir eiga nú um sárt að binda á Grænlandi og segja forsvarsmenn söfnunarinnar mikilsvert að þeir finni að Íslendingar eru þeim vinir í raun. Söfnunarfé rennur óskert til neyðarhjálpar og uppbyggingar í samvinnu við sveitarfélagið og hjálparsamtök á svæðinu.

 Hjálparstarf kirkjunnar hefur opnað söfnunarreikninginn 0334-26-056200, kennitala 450670-0499. Þá er hægt að hringja í 907-2003 og leggja þannig til 2.500 krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert