Orkan, Zwift, Tri&Cube og CCP í forystu

Liðakeppnin í WOW Cyclothon hefur farið vel af stað en lið í A- og B-flokki voru ræst af stað frá Egilshöll hvort í sínu lagi klukkan sex og sjö í kvöld. Samkvæmt nýjustu upplýsingum úr dómarabílnum eru fjögur lið í B-flokki í forystu, það eru lið Orkunnar, Zwift, lið Tri & Cube og lið CCP. 

Umferð tafðist nokkuð um Hvalfjarðargöng þegar hjólreiðafólkið átti þar leið um en allt mun þó hafa gengið vel fyrir sig. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá keppninni en hér að neðan er einnig að finna myndir frá því þegar liðin voru ræst af stað fyrr í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert