Fyrsta flugfélagið með Airbus A321neo

Nýjasta vél WOW air, TF-SKY, verður tekin í áætlun í …
Nýjasta vél WOW air, TF-SKY, verður tekin í áætlun í byrjun næsta mánaðar. Vélin er nú stödd í París á flugsýningu en WOW air er fyrsta flugfélagið til að fljúga vél af þessari gerð, Airbus A321. Ljósmynd/WOW air

WOW air verður fyrsta flugfélagið til þess að fljúga Airbus A321neo en samningur þess efnis var undirritaður í dag á flugsýningu í París þar sem flugvélin er nú til sýnis.

Í tilkynningu er haft eftir Skúla Mogensen, eiganda og forstjóra WOW air, að vélin sé veruleg viðbót við flugvélaflota WOW air og geri félaginu kleift að fljúga vegalengdir yfir sex þúsund kílómetra. „Þannig getum við haldið áfram að bjóða upp á nýja áfangastaði með yngsta flota heims,“ segir Skúli.

„A321neo mun gera WOW air mögulegt að stækka leiðarkerfi sitt í Evrópu og Norður Ameríku með vél sem er ein sú þægilegasta og hagkvæmasta í rekstri á markaðnum í dag. Burtséð frá lágum viðhaldskostnaði býður þessi vél farþegum WOW air upp á frábæra ferðaupplifun,“ segir John Leahy, forstjóri Airbus.

Gael Meheust, forseti og forstjóri CFM International, John Leahy, framkvæmdastjóri …
Gael Meheust, forseti og forstjóri CFM International, John Leahy, framkvæmdastjóri Airbus Commercial Aircraft, Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, og Steven F. Udvar-Házy, stjórnarformaður Air Lease Corporation. Ljósmynd/WOW air



Fær nafnið TF-SKY

Steven F. Udvar-Hazy, stjórnarformaður Air Lease Corporation, segir í tilkynningu að þessi fyrsta afhending vélarinnar í Evrópu sýni glöggt hversu sterkt og gjöfult samstarfið sé við WOW air. „Við erum einstaklega ánægð að vera tengd þeirra uppgangi á heimsvísu. Á skömmum tíma hefur WOW air náð að verða flugfélag sem nýtir sér óhikað tækninýjungar með góðum árangri. Þessi nýja flugvél mun tryggja áframhaldandi vöxt flugfélagsins þar sem hún drífur lengra á sama tíma og hún heldur eldsneytiskostnaði í lágmarki,“ er haft eftir Steven.

Nýja vélin mun hljóta nafnið TF-SKY og fer í áætlunarflug í byrjun júlí og mun meðal annars fljúga til staða á borð við Tel Aviv í september. Vélin er sautjánda vél WOW air og í henni eru 218 sæti. Í lok árs 2018 verða vélar WOW air orðnar 24 talsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert