Samþykkt að kaupa St. Jósefsspítala

St. Jósefsspítali í Hafnarfirði.
St. Jósefsspítali í Hafnarfirði. mbl.is/Árni Sæberg

Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðarbæjar í dag að ganga að fyrirliggjandi kaupsamningi á húsnæði St. Jósefsspítala og þar með frá kaupum á eigninni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá bæjarfélaginu. Við kaupin skuldbindur Hafnarfjarðarbær sig til þess að reka almannaþjónustu í fasteigninni að lágmarki í 15 ár frá undirritun samnings. Mun sérstakur starfshópur skoða hugmyndir um starfsemi í húsinu.

„Hafnarfjarðarbær hefur samið við fjármála- og efnahagsráðuneytið um kaup á 85% eignarhlut ríkisins í St. Jósefsspítala að Suðurgötu 41 í Hafnarfirði ásamt sömu hlutdeild í eignarlóð og öllu því sem eigninni fylgir. Fyrir átti Hafnarfjarðarbær 15% í eigninni. Hér er um að ræða fyrrverandi sjúkrahús á fjórum hæðum í nokkrum samföstum byggingum ásamt kapellu. Stærð hússins er 2.829 m² og er húsið byggt á árunum 1926, 1973 og 2006. Byggingin stendur á 4.467,2 m² eignarlóð sem skilgreind er sem lóð undir samfélagsþjónustu. Við kaupin skuldbindur Hafnarfjarðarbær sig til að reka almannaþjónustu í fasteigninni að lágmarki í 15 ár frá undirritun samnings.“

Enn fremur kemur fram að með almannaþjónustu sé átt við starfsemi vegna félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu, menningar- eða fræðslustarfsemi eða aðra sambærilega þjónustu sem almenningur sækir í sveitarfélaginu. „Hafnarfjarðarbær skuldbindur sig jafnframt til hefja rekstur í fasteigninni innan 3 ára frá undirritun samnings. Kaupverð er 100 milljónir króna og fer afhending á eign fram 15. ágúst 2017.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert