Söfnunin gengið vonum framar

Frá Grænlandi.
Frá Grænlandi. mbl.is/Rax

Sex og hálf milljón króna hafa safnast á fyrstu tveimur dögunum í landssöfnuninni „Vinátta í verki“ vegna hamfaranna á Grænlandi um síðustu helgi. Fram kemur í fréttatilkynningu að skipuleggjendur séu í skýjunum með frábæra byrjun.

„Það sem safnast hefur til þessa er að langmestu leyti frá einstaklingum sem hafa lagt inn á söfnunarreikninginn eða hringt í styrktarsímann. Stærsta framlagið til þessa er frá Air Iceland Connect, ein milljóna króna, og Styrktarsjóður Kiwanis lagði fram 500.000 kr.,“ segir ennfremur en haft er eftir Bjarna Gíslasyni, framkvæmdastjóra Hjálparstofnunar kirkjunnar að byrjunin fari fram úr allra björtustu vonum. Aldrei hafi jafn margir hringt í styrktarsímann á jafn skömmum tíma í fyrri söfnunum hennar.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og biskup Íslands, Agnes Sigurðardóttur, eru meðal þeirra fjölmörgu sem heita á landsmenn að sýna vináttu í verki. Haft er eftir Hrafni Jökulssyni, talsmanni söfnunarinnar, að söfnunin sé rétt að hefjast:

„Viðbrögð almennings eru stórkostleg og til marks um að hamfarirnar á Grænlandi snerta Íslendinga djúpt. Það var svo á við heila vítamínsprautu að fá milljón í heilu lagi frá vinum okkar hjá Air Iceland Connect og ég er snortinn yfir rausnarskap styrktarsjóðs Kiwanis. En ég er beinlínis hrærður yfir öllum framlögunum frá einstaklingum, sem sannar hið fornkveðna, að margt smátt geri eitt stórt.“

Vilyrði hafi þegar borist frá fyrirtækjum og sveitarfélögum um myndarleg framlög í landssöfnunina. Einnig frá klúbbum og félagasamtökum. Markmiðið sé að láta Grænlendinga finna að þeir eigi vináttu og stuðning Íslendinga vísan. „Þannig eru góðir nágrannar. Íslendingar hafa ekki gleymt því þegar Grænlendingar efndu til landssöfnunar eftir snjóflóðin ógurlegu á Flateyri. Nú skulum við senda kærleikskveðju yfir hafið.“

Reikningsnúmer Hjálparstarfs kirkjunnar: 0334-26-056200
Kennitala 450670-0499

Þá er hægt að hringja í 907-2003 og leggja þannig til 2.500 krónur.

Hrafn Jökulsson.
Hrafn Jökulsson. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert