361 íbúð rís á Útvarpsreitnum

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Hilmar Ágústsson forstjóri byggingarfélagsins Skugga …
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Hilmar Ágústsson forstjóri byggingarfélagsins Skugga undirrita samkomulag um uppbyggingu á Útvarpsreitnum. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Hilmar Ágústsson forstjóri byggingarfélagsins Skugga undirrituðu í dag samkomulag um uppbygginguna á Útvarpsreitnum. Skuggi 4 hefur þegar hafið framkvæmdir á reitnum en þar mun 361 íbúð rísa á næstu þremur árum auk um 1000 fermetra atvinnuhúsnæðis sem hannað verður að stórum hluta undir þjónustu við íbúana.

Gert er ráð fyrir að fyrstu íbúðir verði afhentar sumarið 2018. Skuggi 4 selur íbúðir á reitnum til aðila á frjálsum markaði, m.a. til leigufélaga til að stuðla að félagslegri blöndun.

 Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Samkvæmt samkomulaginu sem undirritað var í dag selur Reykjavíkurborg Skugga 4 byggingarrétt sinn á reitnum fyrir 175 milljónir króna og kaupir samhliða 15 íbúðir sem verða dreifðar um reitinn. Íbúðirnar sem Reykjavíkurborg mun kaupa samkvæmt samkomulaginu verða á bilinu 40–60 fermetrar að stærð auk geymslu sem skal verða 5–7 fermetrar.

Byggingarréttarsalan er hluti af samningi Reykjavíkurborgar við RÚV um endurskipulagningu reitsins en þar eru þegar hafnar miklar framkvæmdir.

Þann 13. október 2015 var undirritaður kaupsamningur milli Skugga 4 ehf. og RÚV um kaup á stærstum hluta lóðarréttinda, þ.m.t. byggingarrétti á Útvarpsreitnum.

Með samkomulaginu sem undirritað var í dag selur Reykjavíkurborg byggingarrétt sinn á Útvarpsreitnum til Skugga 4 ehf., sem heldur í kjölfarið á öllum byggingarétti á reitnum. Nánar tiltekið kveður samkomulagið á um sölu á byggingarrétti samkvæmt deiliskipulaginu að lóð B2 á fyrrnefndum Útvarpsreit, ásamt tilheyrandi lóðarréttindum.

„Íbúðir á Útvarpsreitnum verða vandaðar, litlar og meðalstórar, sem henta vel þeim sem kjósa að búa á friðsælum stað í rótgrónu hverfi, miðsvæðis í Reykjavík nærri allri helstu þjónustu og samgönguæðum borgarinnar,“ segir í tilkynningu borgarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert