Andri Ólafsson, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, er hættur störfum hjá blaðinu. Andri hefur starfað hjá 365 í rúmlega tíu ár.
Andri staðfestir þetta í samtali við mbl.is. Hann sagði upp störfum um síðustu mánaðamót.
Kristín Þorsteinsdóttir er ritstjóri Fréttablaðsins.