Costco lækkar olíuverð enn frekar

Olíuverð hjá Costco nú í morgun.
Olíuverð hjá Costco nú í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lítr­inn á díselol­íu hjá Costco hef­ur lækkað úr 158,9 krónum niður í 155,9 krónur. Er verðið tölu­vert lægra en hjá ís­lensku olíu­fé­lög­un­um. Við opnun verslunarinnar þann 23. maí sl. kostaði lítrinn 164,9 krónur.

Sam­kvæmt síðunni bens­in­verd.is er lítr­inn hjá ís­lensku olíu­fé­lög­un­um af díselol­íu ódýr­ast­ur hjá sér­stök­um X-stöðvum Ork­unn­ar eða í 162,7 krónum, það er 6,8 krónum dýrari en hjá Costco.

Verðið á díselolíu hefur lækkað töluvert frá því í lok síðasta mánaðar þegar mbl.is gerði úttekt á verðinu, en þá var verðið hjá Costco í 161,9 krónum, en verðið hjá X-stöðvum Orkunnar í 170,6 krón­um. 

Bensín 10,3 krónum ódýrara hjá Costco

Lítr­inn af bens­íni hjá Costco hefur einnig lækkað aðeins eða niður í 164,9 krónur, sem er einnig tölu­vert lægra verð en hjá ís­lensku olíu­fé­lög­un­um. Lítr­inn hjá ís­lensku olíu­fé­lög­un­um af bens­íni er ódýr­ast­ur hjá X-stöðvum Ork­unn­ar eða í 175,2 krónum eða 10,3 krónum dýrari en hjá Costco. 

Hjá stöðvum Dælunnar kostar lítrinn 175,2 krónur, 183,2 krónur hjá Atlantsolíu á Skemmuvegi, 190,3 krónur hjá öðrum stöðvum Orkunnar, 190,4 krónur hjá ÓB, 190,4 krónur hjá öðrum stöðvum Atlantsolíu, 190,7 krónur hjá N1, 192,4 krónur hjá Skeljungi og 192,4 krónur hjá Olís.

mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert