Sækja slasaða stúlku

mbl.is/Ómar

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Borgarfirði voru kallaðar út í dag vegna stúlku með hafði dottið af hestbaki í Lundarreykjadal.

Samkvæmt fyrstu fregnum virðist sem hesturinn hafi stigið á fót stúlkunnar og er talið að hún sé fótbrotin. Slysið var nokkuð frá vegi og þarf því að bera hana að sjúkrabíl, meðal annars yfir einhverjar torfærur. Tveir hópar björgunarmanna eru á staðnum og verða komnir með stúlkuna að vegi þar sem sjúkrabíll bíður innan stundar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert