Stefndi lífi fólks í augljósa hættu

Það er mat lögreglu að maðurinn liggi undir sterkum grun …
Það er mat lögreglu að maðurinn liggi undir sterkum grun um að hafa framið brot sem varðar 10 ára fangelsi. mbl.is/Eggert

Karlmaður sem er grunaður um að hafa framið rán í apóteki í Garðabæ vopnaður öxi og í kjölfarið reynt að flýja undan lögreglu í bifreið í apríl hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 11. júlí. Ákæra hefur verið gefin út á hendur manninum en brot hans geta varðað allt að 10 ára fangelsi.

Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness frá 13. júní, en það er gert á grundvelli almannahagsmuna.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu krafðist þess að maðurinn sætti áframhaldandi gæsluvarðahaldi þar sem það sé kominn rökstuddur grunur um að maðurinn hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð. Auk þess megi ætla að hann muni reyna að komast úr landi eða leynast ellegar koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar gengi hann laus. 

Maðurinn var handtekinn 18. apríl sgrunaður um að hafa framið rán í apóteki vopnaður öxi og í kjölfarið reynt að flýja undan lögreglu í bifreið þannig að hann hafi raskað umferðaröryggi og stefnt lífi fólks í augljósa hættu.

„Ég vil fá töflurnar mínar“

Í greinargerð lögreglu er haft eftir konu, sem starfar í apótekinum, að maðurin hafi komið inn fyrir afgreiðsluborðið og í sömu andrá dregið fram öxi úr frakkavasa sínum og síðan reist hana á loft. Hann hafi svo staðið um einum metra frá konunni með öxina á lofti og sagt við hana: „Ég vil fá töflurnar mínar, þú veist hvað ég vil“. Hún hafi í kjölfarið beint honum að lyfjunum og náð að komast út úr versluninni.

Önnur vitni sem rætt hafi verið við hafi gefið sömu lýsingu, þ.e. að maðurinn hafi verið vopnaður öxi og ógnað starfsmanni með henni. Þá hafi þau lýst því að hann hefði yfirgefið vettvang á bifreið auk þess sem lýsingar á fatnaði og útliti hafi komið heim og saman við manninn er hann hafi verið handtekinn. Þegar maðurinn var handtekinn fann lögregla öxi og tvo hnífa ásamt nokkuð miklu magni af lyfjum í bifreiðinni.

Með ólíkindum að hafa sloppið í gegn án þess að lenda í árekstri

Hvað varðar akstur mannsins í kjölfar ránsins, þá hafi vitni lýst því að lítil rauð bifreið hafi komið akandi á u.þ.b. 80-90 km hraða og farið yfir gatnamót á rauðu ljósi. Vitnið hafi talið það með ólíkindum að bifreiðin hafi sloppið í gegnum gatnamótin án þess að lenda í árekstri miðað við þá umferð sem var á þeim tíma. Vitnið hafi talið augljóst að ökumaðurinn hafi skapað mjög mikla hættu með akstrinum. Lögregla veitti manninum eftirför í töluverðan tíma án þess að hann sinnti neinum stöðvunarmerkjum ásamt því að brjóta ítrekað umferðarlög en akstrinum lauk með því að hann ók aftan á aðra bifreið og þurfti ökumaður hennar að leita sér aðstoðar á slysadeild.

Það er því mat lögreglu að maðurinn liggi undir sterkum grun um að hafa framið brot sem varðar 10 ára fangelsi. Frumrannsókn lögreglu hafi bent til þess að maðurinn hafi verið í mikilli neyslu fíkniefna og gæti jafnframt átt við geðræn vandamál að stríða.

Þann 18. apríl var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald til 16. maí. Þann dag var hann úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 13. júní. Og nú aftur til 11. júlí. 

Játaði sök og er sakhæfur

Ennfremur kemur fram, að maðurinn hafi við yfirheyrslur hjá lögreglu játað framangreinda háttsemi. Einnig hafi verið gerð geðrannsókn á manninum og séu niðurstöður hennar þær að maðurinn sé  „örugglega sakhæfur skv. 15 gr. hegningarlaga“ og að einkenni hans „leiða ekki til ósakhæfis samkvæmt 16. gr. hegningarlaga“, að mati geðlæknis.

Það sé því mat lögreglu að gæsluvarðhald sé áfram nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna og að óforsvaranlegt þyki að maðurinn gangi laus þegar sterkur grunur leiki á að hann hafi framið svo alvarlegt brot sem honum er gefið að sök og sýnt af sér aðra þá háttsemi sem hafi haft mikla hættu í för með sér fyrir almenna borgara. Þykja brot kærða því vera þess eðlis að það stríði gegn réttarvitund manna að hann gangi laus meðan mál hans er til meðferðar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert