Stormviðvörun á morgun

Ekki er ráðlagt að vera á ferð með hjólhýsi og …
Ekki er ráðlagt að vera á ferð með hjólhýsi og tjaldvagna fyrir austan á morgun. Veðurstofa Íslands

Austan Öræfa og á Austfjörðum verður á morgun norðaustanstormur og vindhviður allt að 35 m/s með talsverðri rigningu. Veðurfræðingur Veðurstofu Íslands segir varasamt að vera þar á ferð með ökutæki sem taka á sig mikinn vind.

Það verða norðlægar áttir, 5-10 m/s, og rigning norðanlands framan af morgni og allan daginn á Vestfjörðum. Annars verður suðlæg eða breytileg átt 3-10 og víða skúrir. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Austurlandi.

„Í fyrramálið dregur til tíðinda og gengur í norðaustan 15-25 austan Öræfa og á Austfjörðum með talsverðri rigningu og snörpum vindhviðum. Ekki gott ferðaveður á þeim slóðum. Fer að lægja seint annað kvöld.

Á norðanverðu landinu verður norðaustan 10-15 og rigning með köflum en hægari og skúrir suðvestanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast suðvestan til.

Um helgina verður áfram minnkandi norðaustanátt, væta og svalt í veðri norðan- og austanlands, en léttir til sunnan- og vestanlands. Eftir helgi er útlit fyrir hægviðri og skýjað með köflum en hætt við síðdegisskúrum. Hiti 8 til 16 stig að deginum, hlýjast um sunnan- og vestanvert landið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.

Spáin næstu daga

Norðlægar áttir, 5-10 m/s og rigning norðanlands framan af morgni og allan daginn á Vestfjörðum. Annars suðlæg eða breytileg átt 3-10 og víða skúrir.

Í fyrramálið gengur í norðaustan 15-25 austan Öræfa og á Austfjörðum með talsverðri rigningu og snörpum vindhviðum. Norðaustan 10-15 og rigning með köflum á norðanverðu landinu en hægari og skúrir suðvestanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Austurlandi í dag en suðvestan til á morgun.

Á föstudag:
Gengur í norðaustan 8-15 með rigningu, en talsverðri rigningu austan til. Hvassast suðaustan til. Hægari vindur og úrkomulitið suðvestanlands síðdegis. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast SV-til.

Á laugardag:
Norðaustan 5-13, hvassast austast. Rigning og svalt í veðri norðan- og austanlands, en léttir til sunnan- og vestanlands. Dregur úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast sunnanlands.

Á sunnudag:
Norðlæg eða breytileg átt 3-8. Skýjað með köflum og stöku síðdegisskúrir sunnan- og vestanlands. Skýjað að mestu um landið norðaustanvert og sums staðar dálítil súld. Hiti 8 til 12 stig en 4 til 8 NA- og A-lands.

Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Hæg norðlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og líkur á síðdegisskúrum. Hiti 8 til 16 stig að deginum, hlýjast um sunnan- og vestanvert landið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert