Farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald

mbl.is/Ófeigur

Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur karlmönnum sem eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu grunaðir um að hafa orðið Arnari Jónssyni Aspar að bana fyrir tveimur vikum í Mosfellsdal.

Fyrri gæsluvarðhaldsúrskurður rennur út á morgun.

Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason lögreglufulltrúi í samtali við mbl.is. Farið verði fram á það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Mennirnir voru yfirheyrðir í dag en Ævar segir ekkert hægt að upplýsa um það frekar.

Sex voru upphaflega handteknir en fjórum sleppt síðasta föstudag þar sem þeir eru ekki taldir hafa komið með beinum hætti að málinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert