365 sektað vegna áfengisauglýsinga

Fjölmiðlanefnd telur að 355 miðlar hafi ætlað sér að komast …
Fjölmiðlanefnd telur að 355 miðlar hafi ætlað sér að komast hjá íslenskri lögsögu. Eggert Jóhannesson

Fjölmiðlanefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að þrjú hefti íslenskrar útgáfu af tímaritinu Glamour hafi innihaldið áfengisauglýsingar og hafi 365 miðlar brotið gegn lögum um fjölmiðla með birtingu þeirra. Er fyrirtækið sektað um eina milljón króna vegna brotanna.

Fjölmiðlanefnd telur að 365 miðlar hafi reynt að komast undan íslenskri lögsögu með tilkynningu til fjölmiðlanefndar, sem barst 6. september síðastliðinn, um fyrirtækið hafi hætt útgáfu tímaritsins Glamour. Ekki kom fram í þeirri tilkynningu að útgáfunni yrði haldið áfram hér á landi með öðrum hætti. 

Útgáfan hélt áfram

Þegar ljóst var að þetta stæðist ekki, enda hafi 365 miðlar meðal annars sent áskriftartilboð til sex mánaða á póstlista tímaritsins í október, undirritað af 365 miðlum. Kallaði fjölmiðlanefnd eftir skýringum frá 365 miðlum í kjölfarið. Í svari fyrirtækisins kom fram að tímaritið væri nú gefið út af erlendum aðila.

„Af svari 365 miðla mátti ráða að 365 miðlar teldu útgáfu tímaritsins Glamour ekki lengur falla undir lögsögu íslenska ríkisins og jafnframt að 365 miðlar teldu það ekki vera á sínu forræði að svara spurningum fjölmiðlanefndar eða veita nefndinni upplýsingar um nýjan útgefanda,“ segir í ákvörðun fjölmiðlanefndar. Í ljós kom umræddur erlendur er breska félagið 365 Media Europe Ltd. en náin tengsl eru á milli þess félags og 365 miðla.

Féllust ekki á sjónarmið 365

Fjölmiðlanefnd greindi 365 miðlum frá því í desember síðastliðnum að ekki væri fallist á sjónarmið fyrirtækisins að útgáfa tímaritsins Glamour félli ekki lengur undir gildissvið laga um fjölmiðla.

„Tímaritið væri, þrátt fyrir þær breytingar sem gerðar hefðu verið á útgáfufélagi þess, fjölmiðill sem félli undir gildissvið laga um fjölmiðla og væri því enn skráningarskyldur hjá fjölmiðlanefnd. Efni tímaritsins og útgáfa lyti ákvæðum laga um fjölmiðla, auk þess sem önnur ákvæði íslenskra laga giltu um fjölmiðilinn, eins og aðra fjölmiðla með staðfestu hér á landi. Mætti þar nefna ákvæði um meiðyrði, höfundarétt, persónuvernd og friðhelgi einkalífs, sem og áfengislög.“

Óskaði fjölmiðlanefnd eftir því að 365 miðlar gengust við ábyrgð sinni á útgáfu Glamour. Var það mat nefndarinnar að tilvísun til breska félagsins 365 Media Europe Ltd. í tímaritinu virtist hafa þann eina tilgang að komast undan íslenskri lögsögu.

Ritstjórnin staðsett á Íslandi

Vísar nefndin meðal annars til þess að efni tímaritsins sé á íslensku, því sé dreift á Ísland og að ritstjórnin sé staðsett á Íslandi. Þá er einnig vísað til tilvísaðra upplýsinga í samrunatilkynningu vegna samruna Fjarskipta hf. og 365 miðla hf., náinna tengsla 365 miðla hf. og 365 Media Europe Ltd., markaðssetningar á Glamour sem 365 miðlar standa fyrir, áskriftartilboða merktum vörumerki hins íslenska félags og starfrækslu vefútgáfu Glamour undir merkjum Vísis. 365 miðlar hafi því borið ábyrgð á umræddum áfengisauglýsingum.

Það er niðurstaða fjölmiðlanefndar að október,- nóvember- og desemberhefti af Glamour „hafi innihaldið viðskiptaboð fyrir áfengi með yfir 2,25% áfengisinnhaldi og hafi 365 miðlar með miðlun þeirra brotið gegn 4. mgr. 37. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert