Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ var kölluð út í morgun vegna leka sem kom að bátnum Sæljós GK.
Báturinn hefur legið bundinn við bryggju á Rifi síðan 16. mars þegar leki kom að bátnum þegar hann var á veiðum sjö sjómílur frá landi. Einn var um borð í bátnum þegar það gerðist. Greiðlega gekk að dæla úr bátnum í morgun.