Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn dætrum sínum

Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur. mbl.is

Karlmaður búsettur í Reykjavík hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur dætrum sínum. Fram kemur á fréttavef Ríkisútvarpsins að móðir stúlknanna krefji hann samtals um þrjár milljónir í miskabætur vegna brotanna gegn dætrum þeirra.

Samkvæmt ákærunni í málinu, sem þingfest var í lokuðu þinghaldi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, er maðurinn sakaður um að hafa margsinnis káfað á kynfærum annarrar stúlkunnar.
Enn fremur er maðurinn ákærður fyrir að hafa ítrekað horft á klámmyndir í viðurvist dætra sinna og að hafa fróað sér á heimili þeirra í viðurvist annarrar þeirra.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert