Lýst eftir Sólrúnu Petru

Sólrún Petra Halldórsdóttir.
Sólrún Petra Halldórsdóttir.

Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Sólrúnu Petru Halldórsdóttur. Sólrún er 16 ára gömul, grannvaxin og um 166 cm á hæð. Hún er með brún augu og rauðbrúnt, sítt hár og var klædd í bláar og rifnar gallabuxur, svartan netabol og hvíta peysu er hún sást síðast. Þá var hún í svartri úlpu með loðkraga og í svörtum strigaskóm. 

Sólrún fór frá heimili sínu í Rangárvallasýslu í fyrrinótt og hefur ekki náðst samband við hana síðan. Talið er að hún dvelji nú á höfuðborgarsvæðinu.

Þeir sem telja sig hafa upplýsingar um Sólrúnu eru beðnir að hafa samband við lögregluna á Facebook eða í síma 444-2000 eða 112.

Uppfært 21:15: Sólrún Petra er fundin heil á húfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert