Tæplega 2.100 útskrifast á morgun

Háskóli Íslands útskrifar fjölda fólks í Laugardalshöll á morgun.
Háskóli Íslands útskrifar fjölda fólks í Laugardalshöll á morgun. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Hátt í 2.100 kandídatar verða brautskráðir úr grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands á morgun. 455 kandídatar brautskráðust frá Háskóla Íslands í febrúar síðastliðnum og því nemur heildarfjöldi brautskráðra á árinu 2.542.

Flestir útskrifast á félagsvísindasviði, samtals 634. Á heilbrigðisvísindasviði útskrifast 510, 273 á hugvísindasviði, 335 á menntavísindasviði og 335 af verkfræði- og náttúruvísindasviði. 

Líkt og undanfarin ár verða tvær brautskráningarathafnir í Laugardalshöll. Í fyrri brautskráningarathöfninni, sem hefst kl. 10:30, taka kandídatar í framhaldsnámi við útskriftarskírteinum sínum en alls verða 809 kandídatar brautskráðir. 

Meðal brautskráðra verða fyrstu nemendurnir sem útskrifast með MA-próf í fjölmiðla- og boðskiptafræði frá stjórnmálafræðideild en námið er samstarfsverkefni félags- og mannvísindadeildar og stjórnmálafræðideildar Háskóla Íslands og hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri.

Þá brautskrást einnig fyrstu nemendurnir með MA-próf í aðferðafræði frá félags- og mannvísindadeild og úr þverfræðilegu framhaldsnámi hjá hagfræðideild og viðskiptafræðideild með MFin-gráðu í fjármálum.

Í seinni athöfninni, sem hefst kl. 14, fer fram brautskráning kandídata sem eru að ljúka grunnnámi, þ.e. BA-, B.Ed.- og BS-námi. Alls ljúka 1.278 kandídatar námi á grunnstigi að þessu sinni og taka við 1.285 prófskírteinum. Þeirra á meðal er fyrsti kandídatinn sem lýkur BS-prófi í hagnýtri stærðfræði frá raunvísindadeild skólans.

Samtals útskrifast því 2.087 kandídatar frá Háskóla Íslands með 2.094 prófskírteini. Prófskírteini verða afhent í röð eftir fræðasviðum: Félagsvísindasvið, heilbrigðisvísindasvið, hugvísindasvið, menntavísindasvið og verkfræði- og náttúruvísindasvið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert