Grjót kastaðist niður fossinn

Gröfumenn reyndu í gær að opna leið fyrir vatnið við …
Gröfumenn reyndu í gær að opna leið fyrir vatnið við brúna yfir Hlíðarendaá á Eskifirði. Ljósmynd/Visit Eskifjörður

Íbúar í húsum við Búðará á Seyðisfirði voru beðnir að yfirgefa hús sín í gærkvöldi vegna vatnavaxta í ánni. Þetta kemur fram í frétt á vef Austurfréttar. Þekkt er að skriður komið niður farveg hennar en Veðurstofan og Vegagerðin hafa varað við skriðuföllum vegna mikillar úrkomu á Austfjörðum.

Í frétt Austurfréttar segir að íbúar í að minnsta kosti þremur húsum hafi haft náttstað annars staðar en heima hjá sér í nótt. 

Vatnsmagn í fossinum í ánni var að sögn íbúanna þrefalt á við það sem hefðbundið er og bar áin stóra steina niður farveginn og köstuðust þeir niður fossinn.

Í frétt mbl.is í gærkvöld kom fram að tjón hefði orðið á nokkrum húsum vegna vatnavaxtanna.

Unnu að björgun brúar

Gröfumenn unnu að því fram yfir miðnætti í kappi við tímann, að grafa upp úr Hlíðarendaá á Eskifirði til að bjarga nýlegri brú sem vatnsflóð hamaðist á. Útlit var fyrir það í gærkvöldi að brúin héldi.

Hlíðarendaá liggur í gegnum byggðina í Eskifirði. Vegna rigninga og leysinga kom hlaup í ána.

Vatnið var kolmórautt og bar með sér mikinn aur. Menn á stórum gröfum unnu hörðum höndum að því að grafa upp úr ánni og veita henni til sjávar. Fljótlega fylltist op brúarinnar og vatn flæddi yfir brúargólfið. Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, vonaðist til að ekki yrðu skemmdir á öðrum mannvirkjum en hús standa við farveg árinnar.

Enn mun rigna í dag 

Áfram mun rigna dug­lega á norðaust­ur­horn­inu fram eft­ir degi, en mikið mun draga úr úr­komu þar í kvöld. 

„Í þess­um aðstæðum er bú­ist við tals­verðu rennsli í ám og lækj­um á svæðinu. Staðbund­in flóð eru lík­leg og auk­in hætta á skriðuföll­um. Ferðafólki er ein­dregið ráðlagt að fylgj­ast vel með veður­spám og frétta­til­kynn­ing­um,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá Veður­stof­unni á Face­book-síðu henn­ar.

Í ábend­ing­um veður­fræðings Vega­gerðar­inn­ar er vak­in at­hygli á því að ekki sé hægt að úti­loka grjót­hrun á vegi á Aust­fjörðum vegna vatns­veðurs­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert