Töluvert mikill viðbúnaður lögreglu og slökkviliðs var við Skerjafjörðinn í Reykjavík eftir að tilkynning barst um að kajak hefði sést á hvolfi úti á firðinum.
Þegar á staðinn var komið sást hins vegar enginn kajak og er talið að þeim sem tilkynntu um málið hafi einfaldlega missýnst og talið baujur vera kajak.