Gáfu forsetanum pizzu í afmælisgjöf

Guðni fékk pizzuna í sérsmíðuðum kassa.
Guðni fékk pizzuna í sérsmíðuðum kassa. Skjáskot

Í tilefni afmælis Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, í dag sendi Domino's honum pizzu í afmælisgjöf. Pizzan var að sjálfsögðu ananas-laus en eins og frægt er orðið lét Guðni þau orð falla fyrr á árinu að hann vildi helst banna ananas á pizzur. 

Í myndbandi sem Domino's birti á Facebook-síðu sinni fyrir skömmu má sjá gerð pizzunnar, en hún var afhent forsetanum í sérsmíðuðum kassa. 

„Við vonum að þú hafir notið ananas-lausu pizzunnar sem við sendum þér í hádeginu. Við settum mikla ást í gerð hennar og kassans utan um hana sem við smíðuðum sérstaklega fyrir þig,“ segir í færslu með myndbandinu.

Þar kemur jafnframt fram að í tilefni dagsins hafi verið ákveðið að blása til pizzuveislu á Barnaspítala Hringsins. 

„Þrefalt húrra fyrir þér! Húrra! Húrra! Húrra!“ segir í lok færslunnar en myndbandið má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert