Máttu hafna greiðslu kæranda

Matvælastofnun var heimilt að hafna greiðslu frá kæranda.
Matvælastofnun var heimilt að hafna greiðslu frá kæranda. mbl.is/Styrmir Kári

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur kveðið upp úrskurð vegna stjórnsýslukæru varðandi úthlutun á greiðslumarki í mjólk í febrúar síðastliðnum. Ákvörðun Matvælastofnunar um að hafna greiðslu frá kæranda fyrir greiðslumark mjólkur var staðfest.

Kærendur óskuðu eftir greiðslufresti sem Matvælastofnun hafnaði og upplýsti að ekki væri hægt að skrá kaupin. Samkvæmt reglugerð um stuðning í nautgriparækt segir að greiðslufrestur vegna kaupa á greiðslumarki sé 20. febrúar.

Þann 21. febrúar var gengið frá uppfærslu á greiðslumarki samkvæmt reglugerðinni, en þann 23. febrúar kröfðust kærendur þess að fá afhent það greiðslumark sem til stóð að úthluta gegn greiðslu. Matvælastofnun hafnaði viðtöku greiðslunnar og vísað til þess að ekki hefði verið heimild til að veita greiðslufrest. Í kjölfarið var málið kært til ráðuneytisins.

Í niðurstöðu ráðuneytisins segir að kærendur hafi ekki uppfyllt lögbundin skilyrði fyrir kaupum á innleystu greiðslumarki, samkvæmt reglugerðinni. Ráðuneytið taldi sjónarmið um meðalhóf ekki eiga við enda hefði Matvælastofnun ekkert svigrúm til að veita greiðslufrest. Þá taldi ráðuneytið að jafnræði aðila hefði verið gætt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert