Fundust heil á húfi

mbl.is/Ómar

Parið sem leitað var að á Vestfjörðum fannst heilt á húfi í Norðdal rétt við Galtarvita um eittleytið í nótt. Höfðu þau breytt ferðaplönum sínum án þess að láta aðstandendur í byggð vita. 

Björg­un­ar­sveit­ir Slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjarg­ar á norðan­verðum Vest­fjörðum voru kallaðar út til leit­ar á ell­efta tím­an­um í gærkvöldi þegar par sem ætlaði að ganga frá Bol­ung­ar­vík að Galt­ar­vita og þaðan í Selár­dal skilaði sér ekki á rétt­um tíma.

Um sextíu björgunarmenn tóku þátt í leitinni sem gekk fljótt og vel fyrir sig, segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert