Áhrif skattbreytingar á Gini-stuðul ólíkleg

Hagstofa Íslands í Borgartúni.
Hagstofa Íslands í Borgartúni. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Ólíklegt þykir að breyting á auðlegðarskatti hafi haft marktæk áhrif á Gini-stuðulinn svokallaða. Þetta kemur fram í svari fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Svandísar Svavarsdóttur, þingmanns Vinstri grænna, um þróun Gini-stuðulsins. Spurði Svandís meðal annars hvernig stuðullinn hafi þróast á árunum 2013 til 2016 og hvaða áhrif skattbreytingar höfðu á stuðulinn á því tímabili.

Stuðullinn er einn þeirra þriggja mælikvarða sem Hagstofa Íslands notar til að mæla dreifingu tekna og eigna og byggir á lífskjararannsókn sem er úrtakskönnun Hagstofunnar. Stuðullinn tekur gildið 0 ef allir hafa sömu ráðstöfunartekjur en gildið 100 ef einn hefur allar tekjur og aðrir ekki neinar.

Þarf sérstakt líkan til að meta áhrifin

Gini-stuðullinn fyrir árið 2013 er 24 en fyrir árið 2014 er stuðullinn 22,7. Fyrir árið 2015 er stuðullinn 23,6 og liggur með 95% öryggi á bilinu 22,3 og 24,9. Að því gefnu sé því ekki hægt að segja til um hvort þær breytingar sem þingmaður spyr um hefðu hnikað Gini-stuðlinum marktækt. Þar sem þeir einstaklingar sem greiddu auðlegðarskatt voru fáir megi leiða að því líkur að ólíklegt sé að breyting á auðlegðarskatti hefði haft marktæk áhrif á Gini-stuðulinn að því er segir í svari ráðherra.

Í svari ráðherra segir einnig að mælikvarðar á borð við Gini-stuðulinn séu betur til þess fallnir að bera saman tekjudreifingu milli landa en til að fylgjast með þróun yfir tíma. Gini-stuðullinn hefur verið gerður hér á landi fyrir árin 2004 til 2015 og er birtur vef Hagstofunnar með vikmörkum sem hafa numið milli 4 og 6% af stuðlinum sjálfum.

Til að meta hvort tiltekin breyting hafi orðið á mælikvarða tekjudreifingar þarf að kanna hvort dreifingin sé nægilega mikil til að hún rúmist ekki innan öryggismarkanna. Svo unnt sé að meta áhrif tiltekinna skattbreytinga á stuðulinn þyrfti að nota svokölluð eindahermilíkön (e. micro-simulation). Sem stendur er unnið er að undirbúningi slíks líkans í ráðuneytinu í samstarfi við fleiri aðila en þeirri vinnu er ólokið.

Rúmlega 200 fjölskyldur greiddu mestan skatt

Svandís spurði einnig um hver þróun stuðulsins hefði verið á sama tímabili ef auðlegðarskattur hefði ekki verið felldur niður. Í svari ráðherra kemur fram að fjöldi þeirra og upphæð, sem greiddu auðlegðarskatt eða viðbótarauðlegðarskatt samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra, hafi verið mestur árið 2013. Þá greiddu 4.778 fjölskyldur annan hvorn þessara skatta eða báða.

Tæpur helmingur fjölskyldna hafi greitt innan við 500.000 kr. í auðlegðarskatta en hins vegar hafi helmingur skattanna verið greiddur af þeim rúmlega 200 fjölskyldum sem mestan skatt greiddu. Áhrif svo fámenns hóps á dreifingu heildartekna eða ráðstöfunartekna séu takmörkuð.

Loks spurði Svandís um áætluð áhrif fækkunar skattþrepa þann 1. janúar 2017 á þróun Gini-stuðulsins. Ekki var unnt að svara þeirri fyrirspurn en í svari sínu vísaði ráðherra aftur til þess að nota þyrfti eindahermilíkön til að meta áhrif slíkra breytinga á tekjudreifingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert