Bókanir undir væntingum

Eitt af hótelum Center Hotels í Reykjavík.
Eitt af hótelum Center Hotels í Reykjavík.

Eva Silvernail, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hótelkeðjunnar Center Hotels, segir að sumarið sé undir væntingum hvað bókanir hótelherbergja varðar. „Sumrin eru alltaf góð, en maður finnur samt að þetta er undir væntingum,“ segir Eva.

Hún segir að styrking krónunnar hafi áhrif, ferðamenn séu farnir að verða viðkvæmari fyrir verðinu og eftirspurnin sé farin að minnka.

„Hluti af minni eftirspurn skrifast líka á að framboð á bæði hótelherbergjum og leyfislausri Airbnb-gistingu hefur aukist,“ segir hún.

Auður Anna Ingólfsdóttir, hótelstjóri Icelandair Hótel Hérað á Egilsstöðum, segir að aldrei hafi verið eins lítið að gera að vetri til eins og var síðasta vetur á hótelinu, á þeim 20 árum sem hún hefur starfað hjá hótelinu.

„Það vantar alla Íslendingatraffíkina. Það er mjög dýrt að fljúga hingað, en dýrasta flugfarið kostar um 50 þúsund krónur fram og til baka. Fyrirtæki virðast til dæmis fara frekar til útlanda með árshátíðir og fundi,“ segir Auður í samtali við Morgunblaðið. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert