Sektir fyrir símnotkun áttfaldist

Ríkissaksóknari leggur til að sektir fyrir símnotkun undir stýri verði …
Ríkissaksóknari leggur til að sektir fyrir símnotkun undir stýri verði áttfaldaðar.

Ríkissaksóknari hefur gert þá tillögu til dómsmálaráðherra að sekt fyrir notkun farsíma án handfrjáls búnaðar verði 40 þúsund krónur. Þetta kemur fram í skriflegu svari Jennýjar Heiðu Björnsdóttur, skrifstofustjóra Ríkissaksóknara.

Þetta er áttfalt á við núverandi sekt, en ökumenn sem nota farsíma undir stýri eru í dag sektaðir um fimm þúsund krónur. Sektin hefur ekki hækkað síðan 2006. Árlega eru um 500 ökumenn kærðir fyrir notkun farsíma undir stýri, en mest hafa rúmlega 900 verið kærðir á einu ári fyrir brotið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert