Lést eftir fall á Kirkjufelli

Erlend kona, sem féll fimmtíu metra niður Kirkjufell á Snæfellsnesi í dag, er látin. Varðstjóri lögreglunnar í Grundarfirði staðfestir þetta í samtali við mbl.is.

Konan mun hafa komið hingað til lands ásamt eiginmanni sínum og öðru pari. Þrjú af þeim fjórum gengu upp á fellið í dag.

Greint var frá slysinu á mbl.is í dag en þyrla Landhelgisgæslunnar sótti konuna upp í fellið.

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert