Setja upp skilti sem vísa Laugavegsförum í skála

Iðagrænt Hattfell á söndunum við Emstrur. Ferðafélag Íslands hefur sett …
Iðagrænt Hattfell á söndunum við Emstrur. Ferðafélag Íslands hefur sett upp vegvísa á Laugaveginum sem vísa göngufólki leið að næstu skálum mbl.is/Una Sighvatsdóttir

Ferðafélag Íslands hefur sett upp vegvísa á Laugaveginum sem vísa göngufólki leið að næstu skálum til beggja átta og segja til um vegalengdir. Alls verða settir upp 24 vegvísar á leiðinni, sem er 55 km löng, og er verkið nú hálfnað.  

Sjálfboðaliðar unnu að því í síðustu viku að setja upp 10 vegvísa. Árni Tryggvason á heiðurinn af hönnun þeirra og Valitor styrkir skiltagerðina.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert