Þyrlan kölluð út vegna hjólreiðaslyss

Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi. Mynd úr safni.
Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi. Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Allt tiltækt viðbragðslið hjólreiðakeppninnar Kia-Gullhringsins, sjúkraflutningamenn og þyrla Landhelgisgæslunnar hafa verið kölluð til aðstoðar eftir hjólreiðaslys á Skálholtsafleggjara, þar sem fimm keppendur skullu í jörðina.

Einn er alvarlega slasaður og hefur þyrlan verið kölluð út til að sækja hann, en hinir keppendurnir slösuðust ýmist ekki eða lítið.

Þetta staðfestir Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Selfossi, í samtali við mbl.is.

Keppnin hefur verið stöðvuð að sinni.

Uppfært 20.35: Þyrla Landhelgisgæslunnar er lent við Landspítalann í Fossvogi.

Uppfært 21.00: Keppni lokið í fylgd björgunarsveita

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert