Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, óskaði Írökum til hamingju með sigurinn í Mósúl í Írak. Hann segir jafnframt að sigurinn merki að „dagar Ríkis íslams séu taldir“ í Írak og Sýrlandi. Hann sagði jafnframt að þennan árangur mætti þakka alþjóðlegu samstarfi við íraska öryggisherinn með liðsstyrk Bandaríkjanna.
Meiri árangur hefur náðst í að ráða niðurlögum Ríkis íslams á síðustu sex mánuðum en allt síðasta ár, sagði Trump jafnframt.
Fyrr í dag heimsótti Haider al-Abadi, forsætisráðherra Íraks, Mósúl til að fagna sigri Írakshers gegn Ríki íslams.