Klemmdist fastur undir bíl

Slys varð á gámasvæðinu við Víkurheiði á Selfossi um klukkan níu í kvöld. Þar féll bifreið af tjakki með þeim afleiðingum að ungur maður sem var að vinna undir bifreiðinni klemmdist fastur. Endurlífgunartilraunir á vettvangi báru árangur og var maðurinn fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á bráðamóttökuna í Fossvogi. Er líðan hans eftir atvikum. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert