Fór til höfuðborgarinnar

Lögregla leitar Louise Soreda.
Lögregla leitar Louise Soreda. Samsett mynd

Franska konan Louise Sor­eda, sem lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir, fór frá Keflavíkurflugvelli með áætlunarbíl á höfuðborgarsvæðið 5. júlí síðastliðinn. Ekki er vitað að svo stöddu um frekari ferðir hennar á landinu. Á morgun verður tekin ákvörðun um frekari aðgerðir, meðal annars hvaða myndavélar í höfuðborginni verða skoðaðar, að sögn Guðjóns.  

„Við erum búin að grandskoða allt myndavélakerfið á flugvellinum og við teljum það nokkuð víst að hún hafi farið með áætlunarbíl á höfuðborgarsvæðið,“ segir Guðjón Garðarsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurnesjum.  

Fjölmargar ábendingar hafa borist lögreglunni frá almenningi sem tengjast Sor­eda. Lögreglan er í samstarfi við öll lögregluembætti á landinu. Það samstarf og þær vísbendingar sem hafa borist frá almenningi hefur enn sem komið er ekki borið neinn árangur.

„Við skoðum allar ábendingar sem okkur berast mjög vel,“ segir Guðjón. Hann segir borgara taka vel við sér í málum sem þessum og setja sig í  samband við lögreglu ef þeir telja sig geta veitt aðstoð. Hann er ánægður með það.  

Spurður um síma Sor­eda, segir hann að ekki sé vitað hvort hún hafi haft síma meðferðis. Ekkert er heldur vitað um farangur hennar eða hvaða klæðnað hún hafði með sér.

Sor­eda er með áberandi hvítan lokk í dökku, síðu hári sem er eitt af einkennum hennar og getur hjálpað fólki að bera kennsl á hana.  

Þegar síðast var vitað var hún klædd blá­um galla­bux­um, brún­um fjall­göngu­skóm og hvítri peysu. Þá hafði hún meðferðis stór­an rauðan bak­poka ásamt upp­rúllaðri ljós­grárri dýnu. Þeir sem hafa upp­lýs­ing­ar um hvar Louise er niður­kom­in, eða hafa séð hana, geta haft sam­band við lög­regl­una á Suður­nesj­um í síma 444-2200.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert