Ekki endanleg niðurstaða

Þorgerður segir starfshóp um eldi eiga eftir að skila af …
Þorgerður segir starfshóp um eldi eiga eftir að skila af sér. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það er starfshópur að störfum sem hefur það hlutverk að skoða eldið vel en þar sitja fulltrúar fiskeldisfyrirtækja, veiðifélaga og bæði umhverfis- og sjávarútvegsráðuneytanna.“

Þetta segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, spurð um áhættumatsskýrslu Hafrannsóknastofnunar um laxeldi sem birt var fyrir helgi en þar er mælt með að ekkert laxeldi verði leyft í Ísafjarðardjúpi.

„Ég hef alltaf undirstrikað og talið mikilvægt að litið sé til sjónarmiða okkar færustu vísindamanna og þau vega þungt en þetta er hluti af stærra samhengi. Auðvitað er það þannig og ég geng út frá því að starfshópurinn reyni að finna jafnvægi milli náttúruverndar og skynsamlegra nýtingarsjónarmiða,“ segir Þorgerður.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert