Fjölgun í fíkniefnabrotum

ljósmynd/Styrmir Kári

Fíkniefnabrotum fjölgaði nokkuð í júnímánuði miðað við meðalfjölda síðustu sex og síðustu 12 mánaða á undan sem og akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Það sem af er ári hafa verið skráð um 46 prósent fleiri fíkniefnaakstrar en að meðaltali síðastliðin þrjú ár á undan.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þar segir að lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafi borist 636 tilkynningar um hegningarlagabrot í júní. Er það nokkur fækkun tilkynninga miðað við síðustu þrjá mánuði á undan. 

Í júnímánuði fækkaði tilkynningum um flesta brotaflokka miðað við fjölda í maí. Tilkynnt var um 83 ofbeldisbrot í júní og fækkaði tilkynningum um 20 prósent miðað við meðaltal síðustu sex og síðustu 12 mánaða á undan. Tilkynningum um nytjastuldi hefur einnig fækkað töluvert það sem af er ári, eða um 20 prósent miðað við meðalfjölda síðustu þriggja ára á undan.

Kemur þetta fram í afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir júnímánuð 2017. Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um helstu afbrot sem hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fjallað er um þróunina á síðustu 13 mánuðum og tölur það sem af er ári bornar saman við sama tímabil síðustu þriggja ára.

Skýrsluna má nálgast hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert