Sundkútar ON teknir úr notkun

Sund og sumarfjör.
Sund og sumarfjör. mbl.is/Golli

Orka náttúrunnar (ON) hefur ákveðið að taka úr notkun sundkúta sem fyrirtækið gaf sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitarfélögum. Ákvörðunin var tekin í kjölfar þess að ábending barst um að kútur hefði rifnað við notkun.

Frá þessu er greint á heimasíðu ON.

Þar segir að kútarnir séu frá frameiðanda sem áður hefur framleitt kúta fyrir íslenskan markað. Kútarnir hafi verið með CE-merkingu, sem sé til marks um að framleiðandinn ábyrgist að varan uppfylli grunnkröfur um öryggi og almennt heilbrigði sem kveðið er á um í tilskipunum Evrópusambandsins.

„ON hafði þegar hafið könnun á öryggi kútanna í kjölfar fyrirspurnar Neytendastofu fyrir um hálfum mánuði síðan, en borist höfðu ábendingar um rifna kúta á sundstöðum. Könnun ON á meðal sundlaugarstarfsmanna leiddi í ljós að á sundstöðum var almenn ánægja með kútana og skemmdir sem vart hafði orðið voru raktar til slæmrar meðferðar á kútunum.

Samkvæmt starfsfólki sundlauga hafi borið á því að  gestir sundstaða hafi rifið kútana í sundur til þess að nota þá sem höfuðhvílur, annað hvort á sundlaugarbarmi eða í sólbaði. ON hóf þegar í stað að láta útbúa sérstakar höfuðhvílur og notkunarleiðbeiningar með kútunum.

Þegar ábending barst í dag um að kútur hefði rifnað í notkun var hins vegar tekin ákvörðun um að taka kútana þegar í stað úr umferð og strax haft samband við alla sundstaði sem fengið höfðu kúta.

Um er að ræða öryggisaðgerð og verða umræddir kútar því ekki settir aftur í umferð. Þetta er gert í samstarfi við sundstaðina sem um ræðir. ON vill hafa vaðið fyrir neðan sig þegar kemur að öryggismálum og verður því framleiðsluferlið allt skoðað, í náinni samvinnu við alla sem að málinu koma,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert