Búið að gera við neyðarlokuna

Neyðarlokan var sett niður síðdegis í gær og var prófunum …
Neyðarlokan var sett niður síðdegis í gær og var prófunum á virkni hennar lokið í gærkvöldi. mbl.is/Golli

Búið er að gera við neyðarloku skólpdælustöðvarinnar við Faxaskjól, sem biluð hafði verið frá 12. júní. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Veitum sem segja lokuna hafa verið setta niður síðdegis í gær og að virkni hennar hafi þá virst með ágætum.

Hún hafi  síðan verið prófuð og stillt enn betur á flóði og fjöru og hafi prófunum á henni lokið seint í gærkvöldi. „Þetta þýðir að búið er að stöðva lekann meðfram neyðarlokunni, sem glímt hefur verið við undanfarið og að reksturinn á dælustöðinni er kominn í eðlilegt horf,“ segir í yfirlýsingunni.

Í gær hafði óhreinsað skólp runnið út í sjó í Faxaskjóli 18 daga í júní og júlí, meðan á viðgerð stóð, eða tæp­lega millj­ón rúm­metr­ar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert