Mjög gott sumarveður í vændum

Spáð er mjög góðu sumarveðri um helgina en þá verður …
Spáð er mjög góðu sumarveðri um helgina en þá verður hiti í kringum 20 stig inn til landsins. Eggert Jóhannesson

Spáð er mjög góðu sumarveðri um helgina en þá verður hiti í kringum 20 stig inn til landsins. Hlýjast og bjartast verður á Norðurlandi og Austurlandi, þar sem hiti gæti farið í um og yfir 20 stig. Hlýtt veður verður á Suður- og Vesturlandi, með vætu á föstudag og laugardag. Svo gæti stytt upp á sunnudeginum.

Á Norðurlandi og Austurlandi verður hlýjast og bjartast. Á Suðurlandi og Vesturlandi verður einnig hlýtt en þó skýjað og vætu spáð á föstudag og laugardag. Á sunnudeginum gæti létt til en mögulega verða þokubakkar við strendurnar. Veðurfræðingur segir veður á höfuðborgarsvæðinu ágætlega hlýtt, með 16-17 stiga hita.

Samkvæmt Þorsteini V. Jónssyni, veðurfræðingi, er mjög gott sumarveður í vændum. Eftir storminn í gær sé mun hlýrra loft á landinu. Hann vonist til að góða veðrið haldist í einhvern tíma en eins og er sé ekki líklegt að það haldist lengur en út næstu viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert