Laust fyrir kl. 6 í morgun barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu beiðni um aðstoð vegna deilna milli sambúðarfólks í Hafnarfirði. Í tilkynningu lögreglu segir að „nokkur óregla“ hafi verði á heimilinu og að málið hafi verið afgreitt á vettvangi.
Um svipað leyti í morgun barst lögreglu tilkynning um ágreining milli tveggja karlmanna inni á heimili í Breiðholti. Mennirnir voru báðir undir áhrifum áfengis. Annar maðurinn yfirgaf vettvang eftir viðræður við lögreglu á staðnum.