Slagsmál við Ingólfstorg

mbl.is/Eggert

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um slagsmál á Ingólfstorgi um hálftvöleytið í nótt. Þar tókust á karl og kona. Lögregla stöðvaði átökin og fór með konuna á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar, en karlinn var færður í fangaklefa.

Er málið nú í rannsókn.

Klukkutíma fyrr í nótt hafði lögreglu borist tilkynning um einstakling sem ekki vildi yfirgefa skemmtistað í Hafnarfirði þegar staðnum var lokað. Var hann handtekinn og færður í fangaklefa vegna ölvunar og óspekta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert