Vinnuslys í Mosfellsbæ

Maðurinn var fluttur á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar.
Maðurinn var fluttur á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

  Snemma í morgun barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um vinnuslys við fyrirtæki í Mosfellsbæ. Í slysinu hlaut karlmaður hugsanlega fótbrot eftir fall, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. Hann var fluttur á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar.

Tvær tilkynningar bárust lögreglunni í morgun vegna eignaspjalla. Upp úr klukkan 9 var tilkynnt um eignaspjöll á húsnæði í miðborginni en þar hafði verið krotað á veggi húsnæðisins. Skömmu síðar var tilkynnt um eignaspjöll á skólabyggingu í Hafnarfirði. Þar hafði einnig verið krotað á veggi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert